sent
efni » 2009 » m
aí 2005 Sexygothicslut Et Celebrities Adriana Volpe Sexy Gothic SlutStjórnvöld í Japan hafa ákveðið að bjóða nokkrum íslenskum ungmennum í tíu daga (tíu nætur og ellefu daga) kynnisferð til Japans haustið 2009 (september/október). Áhugasamir, kynni sér skilyrðin að neðan og skili inn stuttri ritgerð sem nemur einni A4 blaðsíðu um efnið “Hvað er það sem heillar þig við Japan?” Ritgerðinni, ásamt ferilskrá og stuttu bréfi um þátttakanda, skal svo skilað til Sendiráðs Japans á Íslandi,
Þeir þátttakendur sem koma til greina verða boðaðir í viðtal hjá Sendiráði Japans í lok júní.
Lokaákvörðun um vinningshafa verður tekin af Utanríkisráðuneyti Japans.
Vinningshöfum, sem munu verða valdir frá yfir 30 Evrópulöndum, verður boðið í kynnisferð um Japan, þar sem þeir munu fá að kynnast ýmsum hliðum á japönsku þjóðfélagi, s.s. menningu, stjórnmálum, félags- og efnahagsmálum, í gegnum fyrirlestra og heimsóknir á valda staði. Þátttakendur koma einnig til með að fá að skiptast á skoðunum við japanska jafnaldra sína og upplifa daglegt líf með dvöl á japönsku heimili.
Utanríkisráðuneyti Japans kemur til með að skipuleggja ferðina, sem felur í sér víðtækar ferðir um Japan, og leggur til flugfargjöld, dvalarkostnað og ákveðinn kostnað í tengslum við uppákomur.
Þátttökuskilyrði:
・Íslenskur ríkisborgari á aldrinum 20-29 ára (m.v. 1. júní 2009).
・Góð færni í ensku og hæfileikar til samskipta.
・Að hafa aldrei komið til Japans áður og ekki hafa nein fastmótuð áform um að vera á leiðinni þangað í náinni framtíð.
・Félagslyndi, sveigjanleiki og vilji til þátttöku í því hópstarfi sem mun einkenna ferðina.
・Að vera ekki handhafi japansks vegabréfs.
Frekari upplýsingar eru veittar í Sendiráði Japans, veffangi: japan@itn.is eða í síma: 510-8600.
Reykjavík, 13. maí 2009